7.5.2008 | 22:54
Svo bregðast krosstré
Það hljóp nú aldeilis á snærið hjá þessari fjölskyldu á sumardaginn fyrsta,við fengum draumaferðina hjá vildarbörnum,sem er bara frábært í alla staði og stefnan tekin náttúrlega til Florida,og skoða Universal Studios og allan pakkann,svo ætla ég að panta og við vorum búin að plana að fara í lok sept,þá er allt uppselt fram í lok nóv,búhú hitt hefði hentað svo miklu betur,en Icelandair flýgur jú til fleirri staða svo þá er bara að leggja hausinn í bleyti,það verður bara meiriháttar gaman hjá okkur,það vill til að Haffsi minn er svo jákvæður svo það urðu engin teljandi vonbrigði,heimurinn er svo stór og margt að skoða.
Hausinn var lagður í bleyti og ákváðum að fara í lok nóv til Florida, mikið skelfing hlakkar okkur til það verður gaman að sjá jólskrautið þar það er alltaf svo mikið.Svo er Haffsi minn að fara í sumarbúðir til Noregs í júlí,á vegum unglingadeildar Neistanns,hann kvíðir svolítið fyrir hann þekkir ekki krakkana mjög mikið hefur hitt nokkra þegar þau fóru í lazertag í vetur en það stendur til bóta það verður hittingur bráðum hjá krökkum og foreldrum,var að fylla út safety form og þurfti náttúrlega að skrifa á ensku hverskonar hjartasjúkdóm hann væri með,heppin ég það er doktor í familiunni sem bjargaði mér þar,ég sem er búin að horfa svo mikið á House og hélt ég vissi allt,en ég bara veit ekki allt silly me.
srifa þetta á meðan ég þykist vera að vinna en það er eitthvað lítið um að vera í kvöld,fáir vilja vita hvað framtíðin ber í skauti sér,endaengin furða eins og fréttirnar eru þessa daganna,allt á niðurleið,ég sem er svo bjartsýn segi bara eitthvað skemmtilegt,get ekki annað ég er svo glöð enda á leiðinni til Florida með fólkið mitt,jibbí
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.5.2008 | 10:52
Þurfum við yfirleitt lögreglu?
Það sem gerðist var óumflýjanlegt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.5.2008 | 20:29
öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)